Sunday, November 08, 2009

p.s. skellti inn nokkrum handavinnumyndum hér
KATRÍN - brjóstykursgerðarkona
Posted at 11:18 am by katy
Tuesday, September 15, 2009
Leiðrétting vegna mismælis í sjónvarpsþættinum Út og suður;
Vegna harðra áskorana og mikilla óánægjuradda á vinnustað vil ég koma því skýrt og skorinort á framfæri að ástkærir vinnufélagar mínir eru allir sem einn á besta aldri, léttir á fæti og unglegir með eindæmum (og svo er aldur líka afstætt hugtak)!

unga kennslukonan
Posted at 01:11 am by katy
Friday, July 17, 2009
Posted at 10:34 am by katy
Wednesday, May 13, 2009
Vorið er komið og grundirnar gróa...
Það er alltaf í nógu að snúast hjá bændum á vorin - og þó maður sé ekki einusinni með búskap! Opnun sýningarinnar minnar í Sláturhúsinu á Egilsstöðum síðasta sunnudag lukkaðist vonum framar og ég alveg í skýjunum. Náði að stilla síðustu verkunum upp þegar klukkuna vantaði fimm mínútur í opnun - bara eins og óskrifaðar reglur segja til um! Þegar gestirnir voru svo farnir sat ég bara á "bíóbekkjunum" og hlustaði dolfallin á Sigur Rós... ji dúdda mía.

Á þessari mynd sést eitt horn frystiklefans í Sláturhúsinu...
Guðný og Guðfinna, skólasystur mínar úr Húsó 2003 mættu á sýninguna og við fórum saman út að borða á Gistiheimilinu á Egilsstöðum, semsagt Egilsstaðabýlinu. Það var svakalega fínt og flott og frábær matur... og frábært kvöld
Takk fyrir það stelpur mínar!
KATRÍN - í vorverkunum
Posted at 06:49 pm by katy
Saturday, May 09, 2009
Já það má nú segja að maður sér fjölhæfur. Um helgina mun ég gangast undir mörgum titlum: byrjum bara á hótelstýrutitlinum. Sem íbúi Hótel Hallorms er ég sjálfskipuð hótelstýra þessa helgina þegar námskeiðsgestir af austurlandi eru í heimsókn. Hótelstýran verður svosem ekki mikið annað en titillinn að þessu sinni – en þó að einhverju leiti til staðar!
í dag hef ég svo verð ég svo titluð „austfirsk kona" (ég er að sjálfsögðu ný-austfirsk) þar sem við munum hittast í Löngubúð á Djúpavogi, austfirskar listakonur, hönnuðir og athafnakonur þar sem hver og ein kynnti sína starfsemi fyrir gestum og gangandi.
Á morgun, sunnudag, er svo stefnan tekin á titilinn „fröken sýningarhaldari" í frystiklefa Sláturhússins á Egilsstöðum. Þar á að opna útskriftarsýninguna mína „frá Viborg til www" – þá sömu og ég var með í Handverki og Hönnun í mars... en í þetta skiptið er stíllinn allt annar. Húsnæðið er mjög stórt, svart, hrátt og bara rosalega töff... bíóstemning og allt - Hlakka til J
Nú á mánudag verður svo snútið til baka til kennslukonuhlutverksins...
KATRÍN – notadrjúg
Posted at 10:38 pm by katy
Saturday, April 25, 2009
Drossían orðin alveg ægilega hugguleg í tilefni af sumrinu. Skellti mér í að bóna og pússa og sverta alla svarta fleti svo sá rauði ber að sjálfsögðu algjörlega af hérna í sveitinni ;)
Annars er framundan síðasta saumavikan hjá nemendunum! Úff þessi önn er búin að vera alveg ótrúlega fljót að líða. Skólasýningin verður svo þann 17. maí.
Sjálf ætla ég líka að halda sýningu hérna fyrir austan. Ég verð með sýninguna „frá Viborg til www“ í Sláturhúsinu á Egilsstöðum (í frystiklefanum) frá 9. – 23. maí og af því tilefni munu ljósmyndirnar frá katy.is hanga uppi á þeim stað sem ég vil kalla minn stað mína stund, þ.e.a.s. Kaffi Valný á Egilsstöðum.
Posted at 04:27 pm by katy
Friday, April 03, 2009
Ríkisstarfsmaður í páskafríi

Þá er klukkan slegin páskafrí... og unga kennslukonan enn á kennarastofunni til að nota netsambandið! Það er ekkert net heima á Hallormi, og ekki nóg með það, heldur var klóaklögnin grafin í sundur um helgina svo ég hef verið að gera í grunninn að undanförnu
Og ekki orð um það meir!
Hann Bjarni póstur var að svífa hér inn úr dyrunum með pakka frá systir, haldiði ekki að hingað hafi verið að berast biskottí a'la systir
Ég skelli þessu í frystinn og við gæðum okkur saman á þessu eftir páska kennararnir - með kaffinu. Takk kærlega fyrir þessa girnilegu sendingu elsku systir.
Nú það gengur víst ekki annað en að skrölta heim á broddunum og halda áfram við prjónið, það er búið að vera alveg svakalega mikið um pantanir undanfarið svo það má ekki slá slöku við...
KATRÍN - verður á suð-vesturhorninu um páskana
Posted at 04:01 pm by katy
Friday, March 27, 2009
Jæja góðir hálsar, það er orðið langt síðan síðast og eitthvað mis fréttnæmt síðan þá. Ætli það sé ekki hálfur mánuður síðan ég flaug á vit ævintýranna í Reykjavík. Flaug að morgni frá Egilsstöðum, lenti í Reykjavík klukkutíma síðar og þar biðu Gerða og Gunnar Þór eftir mér til að snúast í kring um mig eins og svo oft áður! Þau voru svo almennileg að lána mér drossíuna sína þann daginn og ég keyrði um allan bæ til að leita að ljúffengum óáfengum velkomst-drykk. Á endanum fann ég síderinn, skutlaðist í Handverk og Hönnun til að skella upp eins og einni sýningu, sem var tilbúin korteri fyrir opnun. Þangað komu svo fullt af góðum gestum og ég var alveg ofsalega ánægð með daginn. Þakka bara öllum innilega fyrir komuna á þessa fyrstu einkasýningu mína 
Huldís og Kristín Halla komu svo með mér austur í langþráð húsmæðraorlof... þetta var alveg frábær heimsókn sem ég vona að verði endurtekin sem allra fyrst aftur - takk fyrir komuna stelpur mínar 
Á þessum tíma sem liðinn er frá síðustu færslu er komið vor - og farið vor. Ég var búin að þvo og tjöruhreinsa drossíuna (eða fergusoninn) og átti bara eftir að bóna þegar byrjaði að snjóa... og snjóa og snjóa. Ég er nefnilega að fara með drossíuna í skoðun í Fellabænum í dag, svo hún átti náttúrulega að vera alveg stífbónuð á þeim tíma. En þessu var nú gaukað að mér á kennarastofunni um daginn: "hvað tekur því að vera að bóna ÞETTA"! Ég gat nú svarað því til að það væru sennilega fáir bílar sem hefðu verið bónaðir jafn oft og sá rauði!
KATRÍN - á mannbroddunum enn og aftur
Posted at 12:28 pm by katy
Friday, March 06, 2009
Í kvöld er það útsvarið, þar sem mitt fólk á leik. Eins og nokkur síðastliðin útsvarskvöld verður pítsu- og öl kvöld á Fjósakambinum. Áfram Fljótsdalshérað!!
Nú annars blogga ég lítið þessar vikurnar, og það er náttúrulega bara jákvætt... því hér er um nóg annað að hugsa.
Framundan er mín fyrsta einkasýning. Útskriftarsýning frá Textilseminariet í Viborg þar sem ég sýni prjónalínuna sem kostaði mig blóð, svita og tár - en ótæmandi gleði þegar upp var staðið!! Sýningin verður haldin í Handverki og Hönnun, Aðalstræti 10 í Reykjavík - og allir eru velkomnir! Sýningin opnar föstudaginn 13. mars kl. 16... og ég verð á staðnum til kl. 18 en er þá rokin í flug austur á Fljótsdalshéraðið, ásamt Huldísi og Kristínu Höllu - og þá verður glatt á hjalla 
Vonast til að sjá sem flesta við opnun sýningarinnar eftir viku - sjá nánar á www.katy.is
KATRÍN - sem greiðir útsvar til Borgarbyggðar 
Posted at 12:03 pm by katy
Friday, February 20, 2009
Ég held hreinlega að ég hafi farið á síðasta þorrablót tímabilsins í gær. Í þetta skiptið var það haldið hérna í skólanum, þar sem nemendur rumpuðu þessu auðveldlega af eins og myndarlegu húsfólki einu er lagið! Gestirnir vorum við kennararnir og svo næstu nágrannar og að sjálfsögðu velunnarar skólans. Stórgott alveg hreint.
Framundan er kaffibollinn - í hyllingum. Nú á að hugga sig maður!
KATRÍN
Posted at 12:08 pm by katy